24.11.2011 Fyrsti snjórinn í vetur og frábært færi ég og hrossin nutum þess að ríða út í þessum fyrsta snjó þessi mynd var tekin í dag þetta er Ísak frá Jaðri undan Glóð frá feti og Þrist frá feti. 
25,10,2011 
19.10.2011 Hér er ný mynd eftir Agga verð núna dugleg að setja inn nýjar myndir sem hann málar. 31.08.2011 Það gekk vel hjá okkur með 4 vetra hryssur sýndum 3 af 4 og meðaltal var 7,84 Védís fékk 7,77 Dáð fékk 7,89 og Nótt fékk 7,86 Védís 7,77 Dáð 7,89
Nótt 7,86
14.08.2011 Þá eru frumtamningar á 3 vetra byrjaðar við erum með 4 hryssur og einn gelding og einn graðhest (Jarl) setjum inn myndir þegar við erum kominn út á tryppunum. 12.04.211 Þá er stóðhestaveislan í Ölfushöllinn afstaðinn og fengu Stígandi og Fursti frá Stóra hofi frábær viðbrögð hjá áhorfendum þetta var bara gaman en sonur Stíganda hann Jarl frá Jaðri gerði sér lítið fyrir og vann sinn unghrossaflokk 2008 hjá Hrossaræktarsambandi Suðurlands að mati dómara þessi mynd er tekin af honum við það tilefni af Óðini Erni.

23.02.2011 Álfdís frá jaðri á tölti og brokki tekið í dag. Þessi elska er öll að koma til hún verður 5 í vor og lofar mjög góðu. 01.02.2011 Þá eru komin vídeo af unghryssum inn á Hófapressan.is þar er að finna 3 af 4 hryssum frá okkur sem á 4 vetur. 17,01,2011 Gleðilegt ár allir saman, ég er búinn að vera frekar löt að skrifa á heimsíðuna okkar en það stendur til bóta nú fara að koma inn myndir af folöldum 2010 sem eru öll kominn á hús búið að raka og gera leiðitamin. það gengur vel með hryssurnar okkar og erum við með 3 Stíganda dætur sem eru spenndi að fylgjast með þær eru á 4 vetur í vor. 24.09,2010 Þá er búið að skrúbba allt hesthúsið hátt og lágt nú er allt orðið klárt fyrir veturinn. 12.08.2010 Þá eru frumtamningar hafnar á Jaðri inni eru komnar 4 hryssur fæddar 2007 3 undan Stíganda og ein undan Þrist frá feti. það var bara smá upprifjun hjá okkur í dag en það var þó farið á bak á öllum og teymt undir það gekk allt að óskum. 01.08.2010 Ósk hans Kristófers er hölt þannig að hann ríður Dís í dag , stefnt er með hana á síðsumarsýningu hér er myndir af kristófer og Dís  
01.08.2010 Ísafold er kominn í folaldseign hún er fenginn við Kjarna frá Þjóðólfshaga. Hér eru myndir sem teknar voru þegar henni var sleppt út í meragirðingu.  
03.07.2010 Hér er að svo bróðir Ísafolda hann Kiljan sem þroskast vel er veturgamall undan Glóð og Ás frá Ármóti og var að sjálfsögðu ekki geltur.Hann vann folaldasýninguna hjá Hrossaræktarfélagi Hrunamanna síðasliðið haust .  
02,07,2010 'Isafold frá jaðri var sýnd á hellu aftur , við ákváðum að fara með hana þó að ekki væri löng þjálfun að baki eftir pestina hún fékk 8,07 byggingu (lækkaði fyrir hófa ) og síðan 8,45 fyrir hæfileika út 8.30 hér eru myndir af henni í sýningu sem Kolla Grétars tók . 
31.05.2010 Þá eru allar merar kastaðar á Jaðri við fengum 5 hryssur og 2 hesta og erum mjög kát með það því miður reyndist Gyðja vera tóm hún hefur þá öruglega mist í vetur . 15.05.2010 Jæja þá eru kominn 2 merfolöld í heiminn Glóða kastaði jarpri hryssu undan Stíganda frá Stóra hofi hún hefur hlotið nafnið Jarlhetta og Ylfa kastaði meri undan forseta frá Vorsabæ hún fékk nafnið yrpa og er rauð hálfblesót mjög falleg hryssa . 08.05.2010 jæja þá eru þrjú folöld kominn í heiminn á Jaðri að vísu eigum við bara eitt enþá sem er hestur undan Perónu og Þríst frá feti móálóttur hestur bara nokkuð flottur , hinir eru Móbrúna sem er köstuð rauðbrúnum hesti undan stíganda og svo Prúð sem kastaði í brúnum hesti undan stíganda frá stóra hofi , nú býðum við eftir merunum . 28 apríl 2010 þá er allt komið í hvíld samkvæmt Dýralækni það eru mörg hross sem sýna einkenni kvefpestar þó svo að mörg önnur séu einkennalaus var okkur ráðlagt að hvila allt og svo skal það vera, vonum það besta og vonadi verður þetta yfirstaðið eins flótt og hæt er . 04 apríl Stígandi kom fram á stóðhestaveisluni í Rangárhöllinni og gekk það mjög vel , vakti hann athygli áhorfenda og höfum við fengið þó nokkrar pantanir undir hestinn eftir vel heppnaða sýningu hjá Sigga Sig og einnig kom hann fram í afkvæma hópi hjá pabba sínum (Aron frá Strandarhöfði) til gamans er mynd tekinn í höllinni af Sigurði Sigmunds. 
10, mars þá er búið að taka folöldin undan merunum , nú er bara að byrja að raka. Alltaf gaman þegar folöldin koma inn að kynnast þeim betur og taka eitt og eitt og skoða hvening það hreyfir sig meta ganglag og byggingu. 18 janúar 2010 Jæja búinn að vera löt í tölvuni , en hér er allt komið á fullt allt komið á járn og þjálfun í fullum gangi hægt að skoða þau hross sem eru inni í tenglinum hross á húsi . Einning erum við með 14 hross frá öðurm í Hlaupaþjálfun. 21.11.2009  
Kiljan okkar undan Glóð frá feti og Ás frá Ármóti var vallinn fallegast folaldið í hreppunum af áhorfendum og dómurm við erum mjög lukkuleg með þetta og stolt af honum . 04.11.2009 Nú er komið að því að taka inn hrossinn sem búinn eru að vera í hvíld í 2-5 mánuði og fara að koma þeim í smá púst þessum elskum , við byrjum nú á að láta þau hlaupa af sér svona nokkur kílo áður en maður fer á bak . 24.10 Þá er búið að henda út 7 merum sem allar eru orðnar vel reiðfærar og tími kominn á hvíld hjá þeim. Tókum inn tryppin vetur og 2.vetra inn í svo kallarðar fortamningar við setjum inn myndir fljótlega. 12.10.2009 Frumtamningar ganga vel einungis eru 3 geldinar eftir , og erum við að vinna í þeim, kominn eru inn nokkur vído af ungu hrossunum undir sjálfum sér svo hægt er að sjá hvening þau hreyfa sig. Ætluninn er að klára svona video af öllum tryppunum. 03.10.2009 Þá eru merarnar komnar á heimatúnið hjá okkur í haust beit þessar myndir voru teknar þá.   
25.sept 2009 við erum með fullt af efnilegu hrossum og svo meira gerðum hrossum til sölu endilega hafið samband ef ykkur lýst á einhver hross í síma 6637777 eða e-mail jadar@jadar.is 24 sept .. 2009 ææææ hvað það er langt síðan ég hef skrifað en það er allt komið á fultt hér í hesthúsinu eru frumtamningartryppi og söluhross. Nýjar myndir af unghryssum sem eru orðinn reiðfær og myndir af stíg, útlf og spuna sem eru nú komnir lengra á stað. ´Hjá okkur í hross á húsi eru myndir af öllu sem er inni hjá okkur núna . 14 júni 2009 Þá er yfirlitið búið á hellu og Ísafold frá jaðri varð í 3 sæti í 5 vetra flokk bygging 8,14 hæfileikar 8,39 og út 8,29 flottur árangur hjá henni og Þórði. Einning voru 2 aðrar hryssur dæmdar frá okkur Dís frá jaðri hlaut í byggingu 8,34 fyrir kosti 7,38 hún fór alveg í flækju í brautinni greiið vonandi gegnur betur næst. Ilumur fékk 7.73 hún er mjög jafnvíg hryssa en náði ekki að skeiða eins og væntingar stóðu til við eigum það bara inni. 
30 maí 2009 Þá er yfirliti lokið og Stígandi fór í 8.72 fyrir kosti og 8.10 bygging sem gerir 8,47 út við erum rosalega lukkuleg með það. Glóð er köstuð fengum flottan hest brúnskjóttan sem töltir bara undir sjálfum sér get ekki betur séð að þar sé komið annað stóðhestaefni þegar fram líða stundir hann er undan Ás frá Ármóti. 
24 mai 2009 Í dag fór Gyðja okkar undir Flipa og ákveðið er að Ylfa fari undir Forseta. 21 Mai 2009 Tvö folöld fæddust í nótt , Rauð hryssa undan Stíganda og Ylfu og undan Gyðju og þristi brúnskjóttur stjörnóttur hestur bara flott bæði tvö. Hesturinn hlaut nafnið Kjarkur frá Jaðri og Hryssan Rjóð frá Jaðri.  
20 mai 2009 Spuni er orðinn reiðfær sjá Geldingar og er til sölu. þetta verður flottur hestur og við teljum hann efni í góðan keppnishest. 17 mai 2009 þá er fyrsta hryssan okkar farinn undir Þrist frá feti hún heitir persóna frá ögmundsstöum og kastaði 12 mai hestfolaldi undan Stíganda okkar hann er brúnn að lit og fékk nafnið Þjótandi frá Jaðri. 10 mai 2009 öll folöld kominn út í girðingu bara gaman að sjá þau leika sér úti , Jarlinn og Geysli eru líka komnir í lítið hólf saman þar sem það var ákveðið að gelda þá ekki . 29 Apríl Stígandi úti 

27 Apríl 2009 Jarlinn undan Stíganda sem vann folaldasýninguna  
Stígandi pabbin ,, ekki ósvipaðir Það var haldinn folalda (tryppi) sýning hér í nýju reiðhöllini á Flúðum hátt í 40 folöld mættu til leiks við mættum með 2 folöld undan stíganda hryssu sem heitir Yrsa og hest sem heitir Jarl svo fóru leikar að Jarlinn okkar sigraði og hlaut að launum flottan skjöld frá hrossaræktarfélaginu. Þess má til gamans geta að þetta er í annað sinn sem folald undan Stíganda vinnur folaldasýninguna hér í hreppnum. Jæja þá er vetrarmótum lokið í Smára okkur gekk bara nokkuð vel hross frá okkur unnu 2 sinnum unghrossaflokk og eitt annað í 2 sæti bara gaman þetta voru Vorum í 2 sæti í over all í unghrossunum. 1. sæti Ilmur , úlfur og Ísafold í 2 sæti . 
Ilmur 
Ísafold og Gústi Vífill var í 2 sæti sem vetrargæðinur smára og lukka mín í 4 sæti (mætti ekki á henni á öll mótinn) 
Vítill og Gústi 
Ég og lukka 06 apríl 2009 Hún Védís frá Jaðri er búinn að vera að stríða okkur og fara út úr girðinguni þessar myndir voru teknar þegar við rákum hana til baka inn ekki amalegar hreyfingar hjá 2 vetra tryppi. Við tókum hana inn til að lesa á örmerkið og það má glögt sjá hvað hún er orðinn stór og myndarleg ,, en nú er kominn góður straumur á girðinguna. to years old védís father Sígandi 
 

26 febrúar 2009 Komnar inn myndir af folöldunum frá því í fyrra og nýjar myndir af Úlfi sem eru undir geldingar þetta er allt að koma hjá okkur. 14.febrúar 2009 Nýjar myndir af Ísafold í dómi 2008. 13 febrúar 2009 Komið inn nýtt málverk skoðið. 31 janúar 2009 Nú er við komin með trippa síðu ætluninn er að setja myndir af öllum tryppunum. Magnús Lárusson kom til okkar í haust í þeim tilgangi að kenna okkur að meta unghrossin og sýna okkur hvaða aðferðir hann notar til að nálgast hrossin og fá þau til að vera samvinnuþýð án átaka. Maggi kendi okkur mikið og mælum við með því að fá hans leiðsögn við mat á unghrossum og unghrossa tamningar sem hann stundar. Það er ætlun okkar að fá Magga aftur til að klára unghrossa mat á þeim sem eftir eru þannig verðum við ekki hlutdræg. 30 janúar 2009 við vorum að setja inn nýjar myndir í myndabankan sem heita þjálfunarhringurin þar má sjá rekstrarleiðina þar sem við rekum hrossin. Bætti inn myndum hjá folöldum 2008 . 23 janúar 2009 Loksins kominn með myndabanka (Myndir til vinstri ) inn á síðuna frábært ég mun vera nokkra daga að koma með fullt af myndum frá hrossum og mannlífi á jaðri. 21 janúar 2009 Nú erum við búinn að taka folöldin undan merunum. það eru kominn 9 stykki inn hér sjáið þið myndir af einu sem ég var að klára að raka. Þetta er Jarl frá Jaðri hann er undan Glóð frá feti og Stíganda frá Stóra Hofi. 
20 janúar 2009 Nú er hægt að smella á allar myndir á síðuni til að stækka þær og sjá betur. 19. Jan.2009 Vorum að setja inn nýjar myndir allir að komast í form við vitum að það vanta enþá myndir af geldingum koma vonand mjög fljótlega. 10 des.2008 Allt komið á fullt hjá okkur og gengur bara vel að koma hrossum í form við notum hlaupaleiðina til að halda gleðinni í hrossunm og rekum þau í hollum þetta eru 4,5 kílometra hringur með miklum hæðarmun. 
18.júní 2008 Sylgja frá Ytri-Skógum stóð sig vel í Héraðssýningu á Sörlastöðum. Hún fékk 8.03 fyrir sköpulag og 8.15 fyrir hæfileika sem gera 8.1 í aðaleinkunn. Sylgja er klárhryssa undan Orra frá Þúfu og Stjörnu frá Ytri-Skógum. Hún fer í ræktun á Jaðri og byrjar á að fara undir Kjarna frá Þjóðólfshaga í sumar. Höfuð 8 - Háls/herðar/bógar 8.5 - Bak og lend 7 - Samræmi 8.5 - Fótagerð 7.5 - Réttleiki 7.5 - Hófar 8 - Prúðleiki 8 - Sköpulag8.03 Tölt 8.5 - Brokk 8.5 - Skeið 5 - Stökk 9 - Vilji og geðslag 9 - fegurð í reið 9 - Fet 6.5 - hægt tölt 8.5 - Hægt stökk 8 - Hæfileikar 8.15 Ísafold frá Jaðri stóð sig einnig vel en hún fékk 8.14 fyrir sköpulag og 7.76 fyrir hæfileika sem gera 7.92 í aðaleinkunn og þáttökurétt á landsmóti á Hellu í flokki fjögurra vetra hryssa. Ísafold er undan Glóð frá Feti og Huginn frá Haga. Gaman er að geta þess að Glóð átti aðra dóttur, Kapítólu frá Feti, í sýningu en hún fékk 8.46 í aðaleinkunn. Glóð er farin undir Ás frá Ármóti. - Ylfa kastaði jörpu merfolaldi undan Stíganda frá Stóra-Hofi sem fékk nafnið Yrsa frá Jaðri.
- Gyðja kastaði jörpum hesti undan Stíganda frá Stóra-Hofi sem fékk nafnið Geysli frá Jaðri. Gyðja er farin undir Þrist frá Feti.
- Persóna kastaði jörpu merfolaldi undan Stígandi frá Stóra-Hofi sem fékk nafnið Perla frá Jaðri.
- Móbrúnka kastaði rétt eftir jarðskjálftann móálóttu merfolaldi undan Hruna frá Breiðumörk sem fékk nafnið Hristing frá Jaðri.
- Glóð kastaði bleikum hesti undan Stíganda frá Stóra-Hofi sem fékk nafnið Jarl frá Jaðri. Glóð er farin undir Ás frá Ármóti eins og áður kom fram.
- Snælda kastaði brúnu merfolaldi undan Stíganda frá Stóra-Hofi sem fékk nafnið Sæla frá Jaðri. Hún er farin undir Illing frá tóftum.
Allar merarnar, að Gyðju, Móbrúnku og Glóð undanskildum, eru farnar undir Stíganda frá Stóra-Hofi. Þess má geta að í vetur var haldin folaldasýning hjá ræktunarfélagi Smára, einmitt hér á Jaðri, þar sem Stígandi átti hæst dæmda folaldið, Védísi frá Jaðri. Hann átti einnig annað afkvæmi sem lenti í topp þrem, Dáð frá Jaðri. 8.apríl 2008 Fyrsta folaldið er fætt á Jaðri! Það fæddist 5.apríl, en það er undan Prúð og Sæ frá Bakkakoti.
|